Brottför frá Mörkinni 6 kl. 17 og ekið vestur að jökli. Stutt stopp og
fræðsla að Hellnum um þjóðgarð og jökul. Lagt af stað í gönguna kl. 21
og er gengið úr Eysteinsdal að norðanverðu og þar upp sérlega fallega og
fáfarna gönguleið. Þátttakendur baða sig í miðnætursólinni á tindi
Snæfellsjökuls um miðnættið. Nokkrir listamenn verða með nokkurs konar
gjörninga í leiðangrinum og gefst þátttakendum kostur á leggja sitt af
mörkum.
Ferðin er farin í samstarfi við Þjóðgarðinn Snæfellsjökul og fylgja
landverðir hópnum. Ferðafélag Íslands og Þjóðgarðurinn beita sér fyrir
því að umferð vélknúinna ökutækja verði ekki á jökli þennan dag.
Verð: 5000 / 7000 í einkabíl - 7000 / 9000 með rútu.
Skráning og greiðsla fyrir 1. júní
Sumarsólstöður eru dularfullur tími. Þá fljóta óskasteinar uppi í
tjörnum og óútskýranlegir hlutir gerast. Náttúran öll hefur á sér
yfirbragð frjósemi og lífmagns sem er svo kröftugt að fáir standast
áhrif þess. Sérstök upplifun er að ganga á vit náttúrunnar á þessari
sérstöku stund í tímatalinu og njóta hinnar björtu sumarnætur sem aldrei
verður bjartari en einmitt þá.
Ferðafélag Íslands hefur áratugum saman boðið upp á sérstakar
fjallgöngur um sumarsólstöður. Að þessu sinni verður gengið á magnaðasta
fjall landsins, Snæfellsjökul og ætlunin að standa á toppi fjallsins
skömmu eftir miðnætti og fylgjast með sólinni skríða nálægt eldrauðum
haffletinum.
Snæfellsjökull er 1446 metra hár og óumdeilt meðal fegurstu fjalla
landsins. Þangað eru tíðar ferðir með snjóbílum og hvers kyns vélknúnum
ökutækjum en Ferðafélag Íslands fer að sjálfsögðu gangandi á tindinn.
Þeir sem fyrstir gengu á Snæfellsjökul svo vitað sé með vissu voru
landkönnuðirnir Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson. Þeir gengu á
jökulinn hinn 1. júlí 1753 og stóð ferð þeirra í 11 klst. Meðferðis
höfðu þeir áttavita, hitamæli, loftvog, sterka taug ef bjarga þyrfti
manni úr sprungu og njarðarvött vættan með ediki til að þefa af ef
loftið yrði of þunnt. Þeir gengu á íslenskum skóm og höfðu slæðu fyrir
augum til að verjast snjóbirtu og komust upp á hæstu jökulþúfuna með því
að höggva spor með hnífum og broddstöfum í ísinn. För þeirra þótti vera
hreint glapræði og fífldirfska.
Ferðafélag Íslands verður ekki með njarðarvetti og edik í för
sinni heldur nóg af góðu skapi og göngugleði. Lagt verður af stað frá
Reykjavík kl. 21.00 að kvöldi og ekið vestur undir Jökul. Ekið verður
vestur og norður fyrir jökulinn og lagt af stað úr Eysteinsdal sem er
leynidalur norðan við Hreggnasa og þaðan gengið fáfarnar og fagrar
slóðir á vit jökulsins.
Snæfellsjökull hefur alltaf þótt búa yfir sérstöku dulmagni og
jafnvel hversdagslegustu ferðalangar verða undarlega hulduhrútslegir
þegar jökulinn nær valdi á þeim.
"Ég býst fastlega við að orka jökulsins leiði óþekkta krafta úr
læðingi," segir Páll Guðmundsson fararstjóri sem rifjar einnig upp þegar
lendingu geimvera var spáð á Snæfellsjökli fyrir fáum árum og hópur
manna beið árangurslaust í heilt dægur eftir heimsókn úr öðru sólkerfi.
Ferðin er farin í samstarfi félagsins við Þjóðgarðinn
Snæfellsjökul og verða leiðsögumenn þjóðgarðsins með í för. Félagið og
þjóðgarðurinn munu beita sér fyrir því að þetta tiltekna kvöld og nótt
verði ekki umferð vélknúinna ökutækja um jökulinn svo göngumenn fái
notið kyrrðarinnar ósnortnir af gný nútímans.
Fararstjórar í þessum leiðangri verða hjónin Páll Guðmundsson og
Auður Elva Kjartansdóttir og njóta þau aðstoðar leiðsögumanna
Ferðafélagsins eftir þörfum en þátttaka í sólstöðugöngum félagsins
undanfarin ár hefur stundum hlaupið á hundruðum farþega.
Gera verður ráð fyrir að gangan frá bílum upp á topp jökuls og til baka
taki um 4-5 tíma svo þátttakendur verða ekki komnir aftur til
Reykjavíkur fyrr en undir morgun næsta dags.