|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Fréttir30.9.2009Snæfell úr leik![]() Snæfellsstrákarnir duttu út í kvöld eftir tap gegn Grindavík 95-89. Grindavík leiddi allann leikinn en Snæfell hékk í þeim og náðu ekki að komast skrefinu framar. Grindavík komst í 19 stiga forystu 64-45 en Snæfellingar tóku sig til og náðu því vel niður strax og komust nær 69-63 en Grindavík hélt haus í þetta sinn. Nonni Mæju skoraði 33 stig, Siggi Þorvalds 21 stig og Hlynur 15 stig og tók 16 fráköst. 30.9.2009EymundssonmótiðNiðurröðun leikja á Eymundsson mótinu sem fram fer í DHL-höllinni í vesturbænum um helgina er komin hér. Strákar fæddir 2001 hefja leik á laugardag kl.13:30 Strákar fæddir 2002 hefja leik á laugardag kl.14:30 Stelpurnar hefja leik á sunnudag kl.9:30 Ætlast er til að leikmenn séu komnir í hús 30 mínútum fyrir leik. Gert er ráð fyrir að foreldrar fylgi börnunum í mótið, en þeim foreldrum sem ekki komast í ferðina er bent á að láta vita því það ætti ekki að vera mikið mál að finna laust pláss í þeim fjölmörgu bílum sem fara. Þátttökugjald er 2.000 kr. sem greiðist á mótsstað. Nánari upplýsingar veita Ingi Þór s. 860-1885 og Guðný s. 896-1727 30.9.2009Karfa Bikarkeppninn
29.9.2009Uppskeruhátíð Knattspyrnusamstarfsins
28.9.2009Snæfell lagði StjörnunaSnæfell vann Stjörnuna 96-83 í Powerade bikarnum. Sigurður Þorvalds byrjaði með þrist fyrir Snæfell og Jovan setti tvö strax en svo áttu skotgyðjur Stjörnunar ekki meira inni í smátíma og vörn Snæfells byrjaði þétt. Snæfell var komið í 9 stiga forystu um miðjan fyrsta hluta 13-4 og voru menn þar á bæ léttari í sóknum sínum. Stjarnan hresstist mikið undir lokin og komust niður í 4 stig undir með fimm stigum frá Fannari Helgasyni m.a. en Kjartan var að komat betur inn í leikinn. Staðan eftir fyrsta hluta var 27-20 fyrir Snæfell. Eftir 3 mínútur af öðrum hluta voru Stjörnumenn að skríða betur saman og voru 1 stigi undir 29-28 en skot Snæfellinga höfðu lítið ratað rétta leið. Bæði lið voru að gera vel og illa en engin stórmistök samt framan af öðrum hluta en Snæfell hélt forystu sinni og leystu þétta og góða pressu Stjörnunnar eftir 2 skipti. Jón Ólafur fékk að hvíla mikið í öðrum hluta eftir að vera kominn með 3 villur snemma. Snæfell leiddi svo 47-41 í hálfleik en annar leikhluti var baráttumikill beggja liða. Hlynur Bæringsson var kominn með 10 stig, 4 frák, 5 stoðs fyrir Snæfell. Emil Þór var kominn með 10 stig og Pálmi Freyr 9 stig. Hjá Stjörnunni var Magnús Helgason kominn með 10 stig og Justin 9 stig, 5 frák og 3 stoðs. Snæfell komst með góðri keyrslu í 12-0 fyrstu mínútur í þriðja hluta og Stjörnumenn voru stoppaðir í öllum sínum aðgerðum en Jón Ólafur setti niður 7 af þessum 12 stigum. Snæfell tók alla stjórn á vellinum og stjórnaði Pálmi Freyr sínum mönnum vel og setti niður tvo þrista í röð til að minna á að hann er kominn í Hólminn. Snæfell var komið í 30 -9 í leikhlutanum eða 77-50 eftir þriðja hluta og réðu öllu á vellinum. Leikurinn var jafnari í skorun framan af fjórða hluta en Snæfell hélt forystunni með lítlli fyrihöfn. Jón Ólafur (Nonni Mæju) fór út af með sína fimmtu villu um miðjann hlutann en Magnús Helgason hjá Stjörnunni hafði einmitt verið farinn af velli með fimm villur. Svo fór að Snæfell komst áfram eftir sigur í leiknum 96-83 og var það hinn stóri þriðji leikhluti sem gerði út um leikinn. Hjá Snæfelli var Pálmi með 17 stig, Siggi Þ 15 stig, Nonni 14, Emil 13 stig, Hlynur 12 stig og 10 frák og Gunnlaugur 10 stig. Hjá Stjörnunni var Fannar með 20 stig og 7 frák, Jovan með 18 stig og 8 frák, Justin 16 stig og Magnús 12 stig. 27.9.2009Karfa KvennaSnæfellsstúlkur er úr leik í Poweradebikarnum eftir tap gegn KR 71-39. Upplýsingar um frekari tölfræði hefur ekki legið á lausu en hún kemur hérna inn ef hún berst.
25.9.2009Bændaglímu frestaðBændaglímu Mostra er frestað
þar sem í fyrsta lagi er enginn skráður og í öðru lagi að veðurútlit er ekki gott er Bændaglímu Mostra frestað um óákveðinn tíma Mótanefnd 25.9.2009Dómaranámskeið í BlakiDómarnámskeið í BlakiUnnið er að því að koma á dómaranámskeiðum í blaki,
víðsvegar um landið. Fyrsta námskeiðið verður haldið á Ísafirði miðvikudaginn
16. september. Blaksambandið hefur nú uppfært leikreglur í samræmi við nýjustu
uppfærslu hjá FIVB. Nýju leikreglurnar má finna hér. Námskeið á Snæfellsnesi verður 3. oktober í Sögumiðstöðinni Grundarfirði og hefst klukkan 11.00 Skráning hjá Steinar Alfreð netfang stjf@simnet.is og á skrifstofu Blaksambandssins 25.9.2009Forvarnardagurinn 30 septemberForvarnadagurinn 30. september
25.9.2009Unglingalandsmót 2009Samantekt frá Unglingalandsmóti UMFÍ 2009
Samantekt frá 12. Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki verður endursýnd í Ríkissjónvarpinu næsta sunnudaginn 27. september milli kl. 11:00-12:00.
![]() 25.9.2009Íslandsmeistarmót í SundiÁgætu félagar,
Íslandsmeistaramótið í 25m laug fer fram í Laugardalslaug 19. - 22. nóvember nk. Skráningum skal skilað inn til SSÍ í síðasta lagi 9. nóvember
Uppskeruhátið SSÍ verður haldin 22. nóvember á Grand Hotel Reykjavík, verð er kr. 4.500. Skráningum á uppskeruhátíðina skal einnig skilað inn í síðata lagi 10. nóvember, um leið og skráningum á sundmótið.
Við hlökkum til að taka þátt í þessu verkefni með ykkur. 25.9.2009Þing UMFÍ46. sambandsþing UMFÍ í Reykjanesbæ 10.-11. október HSH á 5 fulltrúa á þingi UMFÍ. Mynd: Frá 45. sambandsþingi UMFÍ sem haldið var á Þingvöllum fyrir tveimur árum. 25.9.2009Alþjóðlegt frjálsíþróttanámskeiðAlþjóðlegt frjálsíþróttanámskeið í Reykjavík 1. - 6. okt.
Það námskeið sem haldið verður hér að þessu sinni er á I. stigi og fyrir leiðbeinendur. Þeir sem útskrifast af þessu námskeiði fá alþjóðleg leiðbeinendaréttindi hjá IAAF og geta kennt leiðbeinendaefnum á vegum IAAF hvort sem er hér a landi eða erlendis. Nánari upplýsingar á skrifstofu
Frjálsíþróttasamband Íslands Engjavegi 4, 104 Reykjavík 25.9.2009Karfa Kvenna26. september: ![]() ![]() ![]() Laugardaginn 26 september taka KR stúlkur á móti Snæfell í DHL Höllinni kl. 14.00. í Poweradebikarkeppninni Snæfellingar eru kvattir til að mæta í DHL höllina og hvetja stúlkurnar okkar. 25.9.2009Snæfell tekur á móti StjörnunniNæsti leikur er í átta liða úrslitum í Powerade-bikarnum í fjárhúsinu
sunnudaginn 27. september klukkan 19:15 þegar að Stjörnumenn mæta í heimsókn en
þeir sigruðu Hamarsmenn 103-83 og virka ferskir í upphafi móts. Það þarf ekki
að nefna það að Justin Shouse leikur með Stjörnumönnum og bjóðum við hann
velkominn í Hólminn á sunnudag.
|
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 70 Gestir í dag: 14 Flettingar í gær: 734 Gestir í gær: 93 Samtals flettingar: 305497 Samtals gestir: 23601 Tölur uppfærðar: 9.9.2010 02:01:40 |