|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Fréttir31.10.2009Staðan í 3 deild eftir fyrstu umferð
31.10.20093 deild kvenna í blakiSvona er staðan eftir fyrstu leikina í gærkveldi hjá konunum3. Suður B, Konur7 lið - Allir við alla, tvöföld umferð
Riðill A
: Allir við alla
31.10.2009Keflavík sigraði Snæfell![]()
Hjá Keflavík voru Þröstur og Sverrir þeirra menn og var Þröstur með 19 stig og 8 fráköst og setti niður 5/7 í þristum sem skóp muninn á milli liðanna. Sverrir setti 17 stig og þar af 12/12 af vítalínunni. Rashin Clark kom til þegar á leið og setti 21 stig og tók 12 fráköst og var lúmskur. Hjá Snæfelli var Hlynur bestur með 20 stig og 17 fráköst en aðrir í liðinu hættu í seinni hálfleik. Jón Ólafur var með 14 stig og þar af 12 þeirra í fjórða hluta þegar allt var búið. Emil var með 13 stig og Sigurður 10 stig og sáust þeir félagar lítið eftir fínann fyrri hlutann. Pálmi setti 11 stig og 7 stoðs.
Guðjón Skúlason var ánægður með umskiptin í seinni hálfleik og sagði að þeirra menn hefðu farið að spila almennilega vörn. "Mér fannst vörnin glæðast og við náðum að halda þeim í 8 stigum í þriðja hluta og það var það sem gerði gæfumunuinn. Þetta var kannski ekki fallegur leikur þannig og við spiluðum ekki alltaf eins og við vildum spila en vörnin gekk svo upp og þeirra mönnum eins og Jóni Ólafi var haldið niðri framan af."
Ingi Þór sagði að þeir hefðu einfaldleg hent þessu frá sér. " Við vorum sjálfum okkur verstir og fórum að láta þá berja okkur niður og henda okkur út úr öllu sem heitir liðsbolti og reyndum einstaklings framtakið sem skilaði okkur engu. Þú sérð að Þröstur kláraði okkur með 5/7 í þristum á meðan allt liðið okkar er mð 5/24 í þristum og Sverrir kom góður af bekknum. Við þurfum að leggjast yfir þetta." Nánar á Snæfell.is 30.10.2009Æfingar að hefjast hjá Víking ÓlÆfingar hjá mfl. hefjast 6. nóvember30.10.2009Mótaþing FRÍMótaþing FRÍ
Frjálsíþróttasamband Íslands heldur árlegt Mótaþing þann 20. nóvember næstkomandi í Íþróttamiðstöðinni Laugardal. Dagskrá
þingsins verður með hefðbundnum hætti þar sem mótaskrá FRÍ verður
kynnt, ásamt breytingum á reglugerðum, dómaramál og umsóknir vegna
mótahalds lagðar fram. Félagsaðilar
FRÍ eru hvattir til þess að taka beinan þátt í Mótaþinginu, sem er
haldið föstudaginn fyrir Silfurleika ÍR, og eru þeir enn fremur hvattir
til þess að hafa samband við skrifstofu sambandsins, vegna málefna sem
óskað er eftir að tekin verða fyrir á dagskrá þingsins. 30.10.2009KSÍ greiðir út til aðildarfélagaFjármagn frá UEFA og KSÍ til íslenskra félagsliða Um 70 milljónir renna til íslenskra félagsliða frá UEFA og KSÍ 30.10.2009 UEFA hefur ákveðið, líkt og áður, að hluti af þeim tekjum sem sambandið hafði af Meistaradeild UEFA (Champions League) 2008/2009 skuli renna til félaga í öllum aðildarlöndum UEFA til eflingar knattspyrnu barna- og unglinga. Uppgjör vegna Meistaradeildarinnar sem lauk vorið 2009 hefur nú farið fram og fá íslensk félög um 37 milljónir króna í sinn hlut til barna- og unglingastarfs. Stjórn KSÍ hefur samþykkt að leggja til um 33 milljónir króna til viðbótar framlagi UEFA til barna - og unglingastarfs aðildarfélaga.
Þau aðildarfélög HSH sem fá greiðslu frá KSÍ eru Víkingur Ólafsvík 1.500.000kr UMF.Grundarfjarðar 750.000kr Snæfell 750.000kr 30.10.2009Snæfell fær nýjan leikstjórnandaSean Burton
![]() Snæfell hefur verið í viðræðum við 22 ára leikstjórnandann Sean Burton en hann kemur frá Yorkville, Utica í New york fylki. Það er skemmst frá því að segja að hann er væntanlegur eftir vikutíma eða svo en pappírsvinna er í gangi og kemur hann þegar allt er klárt.
Sean Burton lék með Itcha Bombers hjá Itcha háskólanum í New York fylki og var hann með 22.4 stig og 7 stoðsendingar að meðaltali á síðustu leiktíð. Sean hefur leikið með Itcha síðustu 4 árin og verið þeirra allra fremsti leikmaður og setti hin ýmsu met hjá skólanum. Þetta er öflugur og sprækur strákur sem Snæfellingar binda vonir um að styrki liðið ásamt því að falla vel inn í þéttann hóp. Sean stundaði líka fótbolta á sínum yngri árum og var þar í fremstu röð í skólanum sínum Notre Dame high school.
Við fengum viðbrögð frá Inga Þór þjálfara sem sagði: "Það verður spennandi að fá Sean til liðs við okkur en þetta er strákur sem er að koma beint úr skóla. Sean mun leysa leikstjórnandastöðuna fyrir okkur sem Pálmi Freyr og Gunnlaugur Smára hafa séð um hjá liðinu. Með tilkomu Sean þá erum við ekkert að sigra heiminn, þetta er strákur sem ætlar að hjálpa Snæfell til að sækja að toppnum og verða betri og betri." Nánar á Snaefell.is 30.10.20093 deild kvenna í blaki3. deild kvenna af stað um helginaAlls
verða 36 leikir í 3. deild kvenna um helgina. Er þetta fyrra mótið í
riðlakeppninni en alls eru 13 lið skráð til leiks og er spilað í
tveimur riðlum.
Mótið fer fram að Varmá í Mosfellsbæ og hefjast leikir kl. 18.00 á morgun föstudag. Leikið er á þremur völlum í einu og má búast við að spilað verði til 22.00 annað kvöld. Á laugardag hefjast svo leikir kl. 09.30 og verður leikið til að ganga 18.00. Það má búast við lífi og fjöri um helgina í Mosfellsbænum en niðurröðun leikja má finna á www.blak.is Í 3 deild suður B eru 3 lið frá snæfellsnesi, Reynir Hellissandi, Snæfell Stykkishólmi og UMFGrundarfjarðar.Óskum við konum okkar góðs gengis um helgina. 30.10.2009Heimasíða HSHÁgætu félagar, Nú eru komnir 2 mánuður síðan við tókum að uppfæra heimasíðu HSH hér á hsh.123.is. á þeim tíma hefur síðan tekið miklum framförum og fréttir úr íþróttalífinu og nærumhverfi íþróttafélagana fengið umfjöllun. Markmið er að hafa síðuna lifandi og vel virka. Öllum sem þurfa að koma á framfæri fréttum úr félagsstarfinu er velkomið að senda inn fréttir til birtingar. Nokkurn veginn allar grunnupplýsingar um félöginn, stjórnir og ráð komnar á síðuna en alltaf er þörf á uppfærslu á þeim vetvangi. Ef einhverjar upplýsingar eru rangar eða vantar þá endilega hafið samband og við leiðréttum það sem þarf. Undir liðnum skjöl hér til hægri eru svo fundargerðir, lög aðildarfélaga og fleirri upplýsingar sem gott er að lesa. Byrjað er að setja inn myndir og eru þetta í flestum tilfellum eldri myndir úr íþróttalífinu. Með HSH kveðju Garðar Svansson Form HSH 30.10.2009Að hætta við.Eftirfarandi pistill var tekinn af vef nemendafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Því miður eiga þessi orð erindi til okkar í íþróttahreyfingunni líka. Of oft er samþykkt að taka þátt í verkefnum og mótum en þegar á reynir er vilji til þáttöku ekki í samræmi við loforð. Ég hvet félaga okkar til að lesa þennan pistil og taka til umhugsunar. Með HSH kveðju Garðar Knattspyrnukeppni Framhaldsskólanna
30.10.2009Snæfell/Skallagrímur lagði Breiðablik![]() Kristján var heitur með 19 stig og 9 fráköst Strákarnir í sameinuðu liði Snæfells og Skallagríms sigruðu Breiðablik 83-72 í spennandi leik sem fram fór í Fjárhúsinu. Í hálfleik leiddu Blikar 33-29 en með þolinmæði sigu vestlendingar framúr og tryggðu sér þriðja sigurinn í röð. Nánar um leikinn á Snaefell.is ![]() 29.10.2009Ljósmyndasamkeppni Ferðafélags Íslands
Ljósmyndasamkeppni Ferðafélags Íslands
Ferðafélag Íslands efnir til ljósmyndasamkeppni sem er öllum opin. Hver keppandi skal senda eigi fleiri en þrjár myndir á netfangið: fi@fi.isSkilafrestur ljósmynda er til 1.des. 2009 og keppt er í tveimur flokkum. Í öðrum flokknum er leitað eftir myndum sem teknar eru í ferðum á vegum Ferðafélags Íslands en í hinum flokknum geta verið ljósmyndir almenns eðlis en þær skulu sendar á sama netfang innan sömu tímamarka.Niðurstöður í samkeppninni verða kynntar 22. desember 2009 en dómnefnd verður skipuð fagmönnum í fremstu röð á sviði ljósmyndunar. Sigurvegarar fá vegleg verðlaun sem eru stafræn myndavél frá Nikon og sumarleyfisferð með Ferðafélagi Íslands að eigin vali fyrir tvo.29.10.2009Blak Víkingur ReynirTilþrif á blakmóti
Meðfylgjandi mynd er af þeim. Í 4. deild, 4. flokki stúlkna voru skráð 2 lið og enduðu þau í 1. og 3. sæti. 4. flokkur pilta spilaði í 3. deild og luku þeir keppni í 3. og 4. sæti. 29.10.2009Ferðafélag SnæfellsnesSnæfellingar gengu á Skipaþúfu
Ferðafélag Snæfellsness var stofnað á þessu ári. Félagið efndi til
gönguferðar á Bjarnarhafnarfjall um helgina og tóku 17 göngumenn þátt í
leiðangrinum. Besta veður var til fjallgöngu því bjart var yfir þrátt
fyrir nokkuð snarpa norðanátt. Göngumenn fengu í verðlaun frábært
útsýni ofan af Skipaþúfu efst á fjallinu. Göngumenn á leið á Bjarnarhafnarfjall um helgina á vegum Ferðafélags Snæfellsness. 29.10.2009Snæfell tapaði fyrir GrindavíkSnæfell tapaði fyrir Grindavík 62 - 73 ![]() Snæfell hafði
undirtökin í byrjun leiks og voru hressari í sóknum sínum á meðan Grindavík var
ekki langt undan að finna taktinn. Grindavík komst á sporið í seint í
fyrsta hluta og komust yfir 10-11 eftir að Michele DeVault tók smá rispu en
leikurinn var hnífjafn og spennandi fyrst um sinn og Snæfell leiddi eftir fyrsta hluta 14-13. Nánar um tölfræði leiksins á Snaefell.is |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 21 Gestir í dag: 9 Flettingar í gær: 734 Gestir í gær: 93 Samtals flettingar: 305448 Samtals gestir: 23596 Tölur uppfærðar: 9.9.2010 01:18:30 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||