|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Fréttir30.5.2010Víkingur vann Aftureldingu 5 - 0Víkingar í efsta sæti deildarinnar eftir 5-0 sigur á Aftureldingu.29. maí 2010
Víkingar sigruðu Aftureldingu í dag með 5 mörkum gegn einu í 3.
umferð 2. deildar í knattspyrnu. Mörk leiksins komu öll í fyrri hálfleik
en Víkingar höfðu skorað tvisvar á fyrstu fjórum mínútunum. Fyrsta
markið skoraði Edin eftir að hafa fylgt eftir skoti Brynjars Gauta og
staðan 1-0. Á fjórðu mínútu bætti Heiðar Atli Emilsson við marki eftir
glæsilegann undirbúning Þorsteins Más sem kom boltanum af harðfylgi og
eftirleikurinn hjá Atla auðveldur. 28.5.2010Vestarr með samstarf við SetbergsklúbbinnSamstarf við SetbergiðVið erum búin að semja við Setbergsklúbbinn um að við getum spilað hjá þeim fyrir aðeins 500.- kr. og þeir fyrir sömu upphæð hjá okkur. Völlurinn er í Hafnarfirði og er 9 holur, þó eru mismunandi teigar á fyrri og seinni hring. Þetta er skemmtulegur völlur, var einu sinni heimavöllurinn minn. Þeir sem vilja spila þar verða að láta vita af sér og greiða í skálanum hjá þeim.Ef það eru margir á vellinum eru þeir með boltarennu sem ræður hver fer út fyrstur á teig, þannig að það getur borgað sig að skoða hvernig staðan er um leið og fólk mætir á völlinn, annars segi ég bara góða skemmtun!! 27.5.2010Vikingur - Afturelding á næst laugardag26.5.2010Úrslit úr Bónusmóti MostraBónusmót Mostra - úrslit
Bónusmótið var haldið á Víkurvelli 2. í
hvítasunnu. Eftir breytingar á vellinum er stuðst við
bráðabirgðavallarmat og því ekki hægt að spila til forgjafar. Nýtt
vallarmat er væntanlegt í byrjun júní.Því er ekki hægt að skrá úrslit
mótisins á golf.is.Úrslit: Höggleikur: 1. Magnús Jónsson GBB 81 högg 2. Björgvin Ragnarsson GMS 88 högg 3-4 Margeir Ingi Rúnarsson GMS 89 högg 3-4 Rúnar Gíslason GMS 89 högg Höggleikur með forgjöf: 1. Egill Egilsson (Yngri) GMS 76 högg 2. Birgir Pétursson GMS 77 högg 3. Hjalti Sigurðsson GMS 78 högg Næstur holu á 6.braut : Högni Högnason GMS 1,11 m Næstur holu á 9.braut : Margeir Ingi Rúnarsson GMS 3,74 m 26.5.2010Fjölskyldan á FjalliðGengið á Eyrarfjall
Fjallganga á Eyrarfjall og hlaupið niður Strákaskarð. Ganga upp tekur um einn og hálfan tíma ef rólega er gengið. Siðan er hlaupið niður fjallið og er skemmsti tími 49 sekúndur, en oftast er miðað við 3 mínútur en það setur engin met í fyrstu tilraun. Ganga á Eyrarfjall hentar fjölskyldum og börnum allt niður til 4-5 ára aldurs. ![]() 26.5.2010StrandblaksþjálfunLandsliðsþjálfari Danmerkur með námskeið 26.maí.2010
![]() Peter Lyø
landliðsþjálfari dana Námskeiðið verður haldið í Fagralundi í Kópavogi og eru takmörkuð sæti á námskeiðið. Skráning og nánari upplýsingar á www.strandblak.is 26.5.201035 öldungamót í blaki
26.5.2010GMS mótaröðinn hefst í dagGMS -mótaröðin hjá Mostra byrjar miðvikud
26.maí
GMS - mótin vinsælu hjá Mostra byrja
miðvikudaginn 26.maí - Mótið er punktakeppni þar sem samanlagður árangur
úr 4 bestu mótum sumarsins telja hjá þátttakendum. Um að gera er að vera með strax frá upphafi. Allir keppendur eru ræstir út á sama tíma í 3ja manna hollum. Mæting á morgun miðvikudag kl 17:30 - ræst út kl 18:00 - Mótið er opið fyrir alla - gestir frá öðrum klúbbum eru boðnir velkomnir. Þátttökugjald kr. 500,- í hvert mót Vinsamlegast skráið ykkur í mótin á netinu - það auðveldar allan undirbúning. Mótanefnd 26.5.2010Landsbankamótaröð VestarrÁ mánudaginn 2 í hvítasunnu var spilað 1 mót í Landsbankamótaröðinni Frábær þátttaka var og mættu 37 kylfingar til leiks. Sigurvegari mótsins var svo Baldur Þór Sigurðsson með 42 punkta og Guðlaugur Harðarson með besta skor 81 högg. Hér Jón Björgvin úr mótanefnd að veita Baldri verðlaun ![]() Gott verður var eins og sjá má á myndunum sem voru teknar á með mótið var. hæglætis vindur og sól. ![]() ![]() 26.5.20103fl kvenna leikjaplanSumarið 2010Leikjaplan 3 fl kvenna í sumarLeikir sumarsins á Íslandsmótinu. ATH að niðurröðun getur breyst!
25.5.2010Ólafur Rafnsson forseti FIBA EuropeMóttaka til heiðurs Ólafi Rafnssyni
Meðal þeirra sem mættu voru forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og íþróttamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, ásamt mörgum formönnum sérsambanda, körfuknattleiksdeilda, íþróttabandalaga og Héraðssambanda. Fulltrúi HSH á móttökunni var Garðar Svansson formaður. ![]() F.v.: Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ og FIBA Europe, Katrín Jakobsdóttir íþróttamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Guðbjörg Norðfjörð varaformaður KKÍ, Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og Gerður Guðjónsdóttir eiginkona Ólafs. 25.5.2010Frí frá æfingum hjá UMFG
25.5.2010Víkingur vann KS/Leiftur á ÓlafsfirðiKS/Leiftur - Víkingur Ó. | Bein lýsing (1-3)Laugardagur 22 mai. ![]() Góð lýsing á leiknum er á síðu Víkings. 25.5.2010Stórt tap hjá UMFG6-0 tapÞá erum við búnir að spila fyrsta leikinn í 3 deildinni og ætli máltækið "fall er fararheill" eigi ekki bara ágætlega við núna. Við vorum gjörsamlega á hælunum allan leikinn fyrir utan c.a. 30 mín í fyrri hálfleik þar sem við náðum að spila ágætlega. Annars var þetta bara lélegt. Reyndar var sigur Stólanna full stór þó að hann hafi verið verðskuldaður. Amk þrjú mörk sem voru eftir algjöran klaufaskap hjá okkur. Nú er bara að girða sig í brók og taka á því í næsta leik sem verður 5. júní næstkomandi.![]() ![]() Myndir fengnar að láni af www.tindastoll.is Byrjunarliðið: Viktor í marki Ingi B í hægri bak Haddi í vinstri bak Tryggvi sweeper Aron og Ragnar miðverðir Jón Steinar hægri kantur Axel vinstri kantur Hrannar og Heimir á miðju Arnar Dóri frammi Bekkur: Tommi Gulli Árni Þór Runni Hinni K 23.5.2010Golf annan í HvítasunnuÁ morgun 2 í Hvítasunnu er 2 golfmót. Mostri heldur Bónusmótið á Víkurvelli og er þar keppt í höggleik með og án forgjafar. Á Bárarvelli er Vestarr með 1 mótið í Landsbankamótaröðinni en þar er keppt í 6 mótum í sumar og 3 bestu telja til stiga. Nánar á Golf.is |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 21 Gestir í dag: 9 Flettingar í gær: 734 Gestir í gær: 93 Samtals flettingar: 305448 Samtals gestir: 23596 Tölur uppfærðar: 9.9.2010 01:18:30 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||