Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Fréttir

21.2.2010

Snæfell Bikarmeistarar

HSH óskar Snæfell til hamingju með Bikarmeistaratitilinn




Hlynur í léttu bikarspjalli

Hlynur Elías Bæringsson fyrirliðin okkar var beðinn um að skrifa nokkrar línur til að sjá hans mynd af stórleikjum sem þessum. Ekki lét landsliðsfolinn sitt eftir liggja enda meistari að upplagi og svaraði spurnum okkar af kostgæfni. Eins og flestum er kunnugt hefur Hlynur verið á toppnum í vetur yfir frákastahæstu menn Iceland express deildarinnar með 15.06 fráköst að meðaltali. Einnig er hann með langhæstu framlagsstig leikja eða 575 stig í allt, 112 stigum á undan næsta manni, 33.82 að meðaltali.

 


 

Þú varst í hópnum 2003 og 2008 tekið bæði silfur og gull hvernig er fílingurinn fyrir svona leiki?



"Fyrst og fremst er mikil tilhlökkun, að spila þessi leiki er það sem virkilega situr eftir í huganum. Hinir leikirnir eiga það margir til að renna saman í eitt en svona leikjum man maður alltaf eftir. Stemmningin, lætin og andrúmsloftið er hreint magnað."

 

 

Hvernig líst þér á mótherjana í Grindavík, hvar er styrkleiki og hvar er veikleiki þeirra?

 

 

"Þeir eru með mun jafnara lið en oft áður, í gegnum tíðina voru þeir oft með öll sín helstu vopn fyrir utan, þ.e.a.s. í bakvörðunum, hins vegar með frábærum leikmanni eins og Darrel Flake er mikið betra jafnvægi hjá þeim og þeir með mjög gott lið. Þetta er liðið sem var spáð öllum titlum áður en þeir hikstuðu aðeins í byrjun móts, þá aðallega vegna meiðsla. Þeir eru því með mikið af styrkleikum en lítið af veikleikum, sem þeir þó hafa og eru viss atriði sem við ætlum að nýta okkur á laugardaginn."

 

Hvað leggur Snæfell áherslu á í leiknum?

 


"Vörn og fráköst eru algjört lykilatriði eins og í öllum leikjum, svo viljum við helst hafa flæðið gott í leiknum og sem flestir komist í takt við leikinn. Þannig þurfum við ekki að treysta á stórleiki frá einstökum leikmönnum heldur getum unnið þetta saman innan liðsins. Ef við gerum það er ég viss um að við vinnum."

 

 

Skilaboð til stuðningsfólks fyrir leikinn?

 

 

"Þau eru einföld, mæta snemma og draga sem flesta með sér í rauðum bolum. Sleppa sér aðeins og hafa læti og hætta aldrei að hvetja sama hvernig staðan er, reynsla síðustu ára kennir okkur það að hætta aldrei. En aðallega vona ég að allir skemmti sér vel og njóti dagsins."

 

-sbh-


Skrifað 21.2.2010 kl. 16:01 af Garðar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Vafraðu um

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 160
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 2114
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 244486
Samtals gestir: 19975
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 01:02:15

Eldra efni