|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Fréttir26.2.2010Fréttir frá VestarrFréttir úr starfiJæja
félagar, nú er biðin eftir sumrinu farin að verða óbærileg en ef allar
góðar vættir eru með okkur þá eru þetta ekki nema 2 mánuðir í viðbót. Það er að frétta úr starfinu að Garðar Svans og strákarnir frá Almennu umhverfisþjónustunni eru búnir að skipta um rotþró. Þeir stóðu í þessum skítverkum í hörkufrosti og eiga mikið hrós skilið fyrir að klára þetta fyrir okkur. Hér sjást kapparnir að störfum: Setta gámurinn er kominn út á völl og búið að stilla honum upp. Það á eftir að klæða hann og gera hann snyrtilegan, koma á hann ljósum ofl. Síðan geta félagsmenn leigt sér pláss í honum eða keypt sér pláss til eignar. Þeir sem vilja setja upp sinn eigin skáp geta svo innréttað sitt pláss eins og þeir vilja en innan stærðarmarka að sjálfsögðu. Þeir sem vilja leigja sér pláss geta fengið það fyrir kr 5.000 á ári en þeir sem vilja kaupa pláss til eignar geta keypt það á kr 30.000. Við munum væntanlega kalla saman vinnuhóp á næstu misserum til þess að klára gáminn. Þeir sem hafa keyrt upp á völl hafa væntanlega séð að búið er að dreifa skít á völlinn. Við munum láta skítinn liggja enn um sinn á vellinum en reyna að slóðdraga áður en völlurinn verður opnaður í vor. Nýja stjórnin verður með sinn fyrsta fund á sunnudaginn kemur ( 21. feb kl 20 í framhaldsskólanum) og verða meðal annars festir fundartímar bæði fyrir vetur og sumar. Þegar búið er að ákveða þá verða þeir birtir hér á síðunni. Ef einhver vill koma einhverjum skilaboðum inn á fundinn er hægt að senda það í tölvupósti til mín, Péturs, Önnu Maríu eða bara hvers sem er sem í stjórninni er. Nýja stjórnin er svo skipuð: Pétur V. Georgs, formaður Anna María Reynisdóttir, ritari Þórður Magnússon, gjaldkeri Páll Guðmundsson, formaður vallarnefndar Garðar Svansson, formaður mótanefndar Hugrún Elísdóttir, formaður kvennanefndar Dagbjartur Harðarson, formaður nýliðanefndar Guðlaugur Harðarson, formaður skálanefndar Formenn nefnda eru skv breytingum sem gerð var á lögum félagsins nú sjálfkarfa í stjórn félagsins. Þeir velja sér svo félaga til þess að fullmanna nefndirnar og verður það birt hér á vefnum hvernig þær líta út þegar þær eru fullskipaðar. Nýju lögin hafa ekki borist mér í hendur en ég mun einnig birta þau hér um leið og ég kemst yfir þau. Við munum síðan birta allar fundargerðir stjórnar hér á vefnum líkt og gert var í fyrra. Einnig eru fundargerðir aðgengilegar undir liðnum "Skrár" hér hægra meginn á síðunni. Meira er það ekki í bili. Ég bið að heilsa að sinni, góðar stundir. |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 70 Gestir í dag: 14 Flettingar í gær: 2114 Gestir í gær: 92 Samtals flettingar: 244396 Samtals gestir: 19973 Tölur uppfærðar: 1.8.2010 00:41:13 |