|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Fréttir1.3.2010UMFG- Augnablik 2-1Grundarfjörður - Augnablik 2-1Á laugardaginn síðasta skruppu strákarnir í UMFG í Hafnarfjarðarsveit og kepptu æfingaleik við Augnablik, meðfylgjandi er ferðasaga þeirra.Við strákarnir hérna fyrir vestan rifum okkur upp fyrir allar aldir og hópuðumst í hópferðarbílinn fyrir ferðina suður. Okkur leist ekkert sérstaklega vel á veðrið en lögðum samt af stað með góða skapið. Svo var mætt á Ásvelli og ástandið á vellinum var ekkert sérstakt en slapp þó til þegar búið var að sópa frá línunum. Byrjunarliðið var þannig skipað: Viktor stóð í markinu Ingi Björn var hægri bak Hinni Rauði vinstri bak Aron Baldurs og Jón Frímann voru miðverðir Tommi hægri kantur Tryggvi vinstri kantur Hrannar og Styrmir voru á miðjunni. Ragnar Smári fyrir framan miðju Arnar Dóri á toppnum. Bekkurinn: Atli Kristins Runni Batti Þorri Axel Við byrjuðum með vindi og vorum með smá hríð í bakið fyrstu tuttugu mínúturnar eða svo. Við pressuðum á þá nánast allan fyrri hálfleikinn og ég held að þeir hafi átt c.a. eina sókn. Viktor hafði amk mjög lítið að gera í fyrri hálfleik. Fljótlega í leiknum fengum við aukaspyrnu í skotfæri. Tryggvi stillti sér upp og bjuggust allir við skotinu. Arnar Dóri hafði þá laumað sér bak við vegginn og Tryggvi renndi boltanum beint á hann og Dóri smurði hann í stöngina nær og inn. 1-0. Fljótlega eftir það sendi Tryggvi eitraða sendingu inn fyrir vörnina þar sem að Ragnar Smári kom á ferðinni og slapp einn innfyrir. Hann kláraði færið vel og hamraði boltann í netið 2-0. Styrmir fékk líka dauðafæri og svo átti Ragnar skot í stöng. Með smá heppni hefðum við getað verið 4-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik var lagt á ráðin að halda boltanum niðri og gekk það ljómandi vel. Við vorum að fá fín færi í seinni hálfleik þegar Axel var kominn á vinstri vænginn og átti hann marga eitraða spretti. Augnablik minkaði muninn þegar c.a. 20 mín voru eftir og pressuðu þá frekar stíft á okkur en við náðum að halda þetta út. Fyrsti sigurinn okkar saman og þetta var rosalega massívt. Við vorum að minnsta kosti hressir á leiðinn heim á hópferðabílnum og Siggi Hlö var ánægður með okkur. |
Vafraðu umEldra efni HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 70 Gestir í dag: 14 Flettingar í gær: 2114 Gestir í gær: 92 Samtals flettingar: 244396 Samtals gestir: 19973 Tölur uppfærðar: 1.8.2010 00:41:13 |