Brynjar Gauti Guðjónsson
fyrirliði Víkings hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins
2011. Brynjar hefur verið að spila frábærlega í sumar bæði í stöðu
miðvarðar og miðjumans. Í þeim 14 leikjum sem Brynjar hefur spilað í
sumar hefur hann skorað þrjú mörk. Brynjar hóf feril sinn með
meistarflokki aðeins 15 ára gamall og hefur síðan þá leikið 48 leiki
fyrir félagið í deildar- og bikarkeppni.
"Það er mjög
ánægjulegt að vera búinn að semja við mitt uppeldisfélag. Samstarf mitt
við klúbbinn hefur verið gott og því engin ástæða til að vera breyta til
á miðju tímabili. Ég mun klára þetta tímabil og svo verða málin skoðuð í
haust" . Sagði Brynjar Gauti Guðjónsson í samtali við
vikingurol.is
Brynjar Kristmundsson skrifaði í gær undir framlengingu á samning
sínum við Víking Ólafsvík og mun því vera samningsbundin félaginu til
ársins 2011. Brynjar sem löngum hefur spilað sem hægri kantmaður hefur
verið að finna sig vel í nýrri stöðu sem hægri bakvörður. Brynjar hefur
spilað alla leiki liðsins í sumar eða alls 16 og skorað eitt mark.
Frá
árinu 2007 hefur Brynjar komið við sögu í 47 deildarleikjum og skorað 5
mörk. Brynjar hóf ungur að árum að spila með meistaraflokki en hann var
aðeins 15 þegar hann spilaði sinn fyrsta leik í 1. deild.